|
GuN$t1
|
|
|
11.06.2007 15:48:52 / Gunnsteinn
»
11.08.2006 15:18:50 / Gunnsteinn
»
03.08.2006 13:00:58 / Gunnsteinn

Þessar myndir eru geðveikt flottar. Smellið á myndirnar til að sjá
stóru myndirnar (þessar eru bara smá brot af myndunum sjálfum).
»
03.08.2006 12:52:08 / Gunnsteinn

Ég sat heima í rólegheitunum á þriðjudaginn með litlu Júlíu mína
veika. Þar sem ég hafði nú svona sæmilega lítið að gera þá skellti
ég myndinni "The Mexican" í spilarann og lét hana rúlla á meðan ég
leik við Júlíu. Ég verð nú að segja að þessi mynd er bara hin
sæmilegasta ræma.
Brad Pitt leikur þarna frekar seinheppinn (vægt til orða tekið)
þjóf sem hefur verið að vinna fyrir einhverja peyja. Þegar hann
ákveður að hætta þá er hann fenginn til að taka að sér eitt síðasta
verkið. Þannig vildi til að hann klúðraði því dæmi og þurfti því að
taka að sér eitt verk til viðbótar. Það verk fól það í sér að hann
þurfti að fara til Mexíkó og ná í byssu og koma henni ásamt gaurnum
sem geymdi byssuna aftur til USA. Í stuttu máli þá drepst gaurinn
sem var með byssuna og upp hefst eitt allsherjar klúður hjá Pitt. Á
meðan hann er að djöflast eitthvað í Mexíkó þá er kærustunni hans
(leikin af Juliu Roberts) rænt af furðulegum, samkynhneigðum
glæpamanni.
En þetta reddaðist nú allt á endanum og allir vondu peyjarnir eru
drepnir og Brad Pitt og Julia Roberts enda hamingjusöm í smá bið
eftir að Pitt fái vegabréfið sitt sent til þeirra svo að þau komist
aftur til USA.
Slagarinn í þessari mynd var held ég þegar Pitt er kominn á
bílaleigubílinn sinn og hann raular aftur og aftur "El-camino,
el-camino!"
Þannig að mín niðurstaða er sú að þessi mynd fær alveg 3,5
stjörnur.
»
31.07.2006 11:58:56 / Gunnsteinn

Þar sem ég sat nú einn heima á laugardagskvöldið þá ákvað ég að
leigja DVD mynd. Fyrir valinu varð myndin Transporter 2. Það sem
maður átti von á var að sjá flotta bíla, nokkuð töff akstursatriði
og slagsmál. Að þessu leyti stóð myndin algjörlega undir þeim
væntingum sem ég hafði til hennar.
Hins vegar hafði maður auðvitað ekki græna glóru um það hver
söguþráðurinn ætti að vera. Ég held að ég verði að segja að
söguþráðurinn var bara allt í lagi, ekkert mikið meira en það.
Þarna var einhver gaur sem Kólumbískir kókhausar höfðu borgað til
að láta hann koma einhverjum vírusi á ráðstefnu þar sem hátt settir
aðilar væru allir saman komnir. Þannig ætluðu þeir að losna við
Bandarísk yfirvöld. Gaurinn sem var fenginn til þess að redda þessu
lét ræna litlum strák og sprauta hann með vírusnum, svo þegar pabbi
stráksins kom nálægt honum þá virkaði vírusinn þannig að pabbinn
smitast af stráknum ef hann er í sama herbergi og hann. Svo fór
pabbinn á ráðstefnuna og smitaði helling af liði þar.
Eina vandamálið sem vondi kallinn sá ekki fyrir var "The Driver"
eins og hann var kallaður og að hann gæti bara tekið völdin í sínar
hendur og klárað dæmið. Frekar fyrirsjáanlegt en samt
einhvernveginn mynd sem maður verður að sjá. Þessi var náttúrulega
ekki nálægt því að vera jafn góð og fyrri myndin en engu að síður
hin fínasta afþreying.
Held að ég geti alveg gefið henni svona 3 stjörnur.

»
31.07.2006 11:44:51 / Gunnsteinn
Shit hvað maður væri nú til í að geta flogið svona þegar maður er í löngu flugi!!!
»
28.07.2006 14:15:39 / Gunnsteinn
Það sem konur
ættu bara að vita
-
Ef þú heldur
að þú sérst feit, þá ertu það örugglega. Ekki spyrja
-
Lærðu sjálf á
klósett setuna, ef hún er uppi, settu hana þá niður
-
Konudagur,
Mæðradagur, samvistarafmælisdagar, þeir gleymast.
-
Ef þú spyrð
spurningar sem þú villt ekki fá svar við, ekki spyrja.
-
Stundum erum
við bara ekki að hugsa um þig. Sættu þig við það
-
Köttur er
bara köttur, óþarfi að grenja í viku ef hann fer.
-
Hundar ERU
betri en kettir. Punktur.
-
Bróðir þinn
er asni, Fyrrverndi gæinn þinn líka og ábyggilega pabbi
þinn.
-
Segðu hvað þú
villt, ekki hinta að því.
-
Að pissa
standandi, þýðir að það fer útfyrir.
-
Já og Nei,
eru fullkomlega gild svör
-
Hausverkur í
7 mánuði er vandamál, farðu til læknis
-
Mamma þín
þarf ekki endilega að vera besti vinur okkar
-
Já, það þarf
að setja bensín á bílinn
-
Nei það þarf
ekki að vera að stjörnumerkjabókin segi til um hvort við eigum
saman eða ekki
-
Allt sem var
sagð fyrir 6 til 8 mánuðum er eitthvað sem má ekki nota í rifrildum
í dag. Það sem var sagt fyrir sólhring síðan hefur
fyrnst
-
Ef það er
eitthvað sem þú segir sem má túlka á 2 vegu en annað atriðið særir
þig og gerir þig ílla, þá meintum við auðvitað hinn hlutinn sem
þetta meinti.
-
Ekki strjúka
lampanum ef þú villt ekki að andinn komi út.
-
Þú getur
annað hvort beðið okkur um að gera eitthvað eða sagt okkur hvernig
þú villt að það sé gert, en ekki bæði.
-
Christofer
Columbus þurfti ekki leiðbeiningar,,, ekki við heldur.
-
Konur í
wonder bra og fráhneftum skirtum efst, erum búin að tapa réttinum
um að ekki megi horfa á brjóstin þeirra.
»
28.07.2006 14:14:29 / Gunnsteinn
Góðan daginn gott fólk,
Ég hef ákveðið að gera heiðarlega tilraun til að halda úti smá
bloggi (aftur). Ég hugsa að ég nenni nú ekki að vera með hið
hefðbundna blogg eins og áður, heldur ætla ég að henda inn smá
bröndurum og fleira svoleiðis dóti.
Gunnsteinn
»
|
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
Dagsetning
10. febrúar 2012
|